Færsluflokkur: Ferðalög

"Stóráfallalaust"

Ef einhvern á ekki að hlusta á um fregnir af þjóhátíð þá er það framkvæmdastjóri þjóðhátíðarnefndar eða yfirmenn lögreglu. Þeir segja frá því sem hentar ímynd hátíðarinnar best. Sannleikann segja gestir, starfsmenn í þrifum eða aðhlynningu þeirra sem verða fyrir tilefnislausum árásum, óvæntum ælum eða óæskilegu kynlífi. Ætli stóráfallalaust þýði ekki helst að ekki hafi ríkt borgarastyrjöld í bænum eða að flestir hafi möglunarlaust greitt fyrir þjónustu á svæðinu? Ég skemmti mér þó hvergi betur en á Þjóðhátið, hún er að minnsta kosti skemmtilegri en þjóðhátíð Íslendinga.
mbl.is Metfjöldi á þjóðhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líklega bara snjóskafl

Það er ekkert að marka þessar konur sem segjast sjá eitt og annað á ferðum sínum um heiminn. Líður þessum leitarmönnum aldrei eins og verið sé að hafa þá að fíflum, hvort þeir heldur leita bjarndýra eða strípalinga. Það er ekki fallega gert að gera grín að lögreglu og björgunarsveitum og ættu þessar konur bara að hafa sínar fantasíur fyrir sjálfar sig. Skömm að þessu.
mbl.is Maðurinn enn ófundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að þetta var ekki í Noregi

Það fór eins og ég óttaðist, elgir virðast við fyrstu sýn vera litlar krúttlegar verur en eins og ég benti á fyrr í dag geta þeir verið varasamir. Ég er fegin því að Geir lenti ekki í elgnum á ferðum sínum um Noreg en ef það gerðist væri það hneisa fyrir Ísland út á við. Best væri að hann færi að koma heim sem fyrst því það er margt að varast á ferðum erlendis.
mbl.is Drukkinn elgur réðist á stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr umferð

Ég las þessa úttekt sem ferðamaður á leið minni til landsins í vor og staldraði nokkuð við þessar nafngiftir bæja um landið og mér var ekki skemmt. Þarna var ýmislegt sem ég vel skilið að særi. Mér sárnaði nokkuð að sjá mína gömlu borg, Reykjavík fá nafnið City of Fear sem er aldeilis ekki til sóma og í raun til skammar. Heldur verri útreið fá Suðurnesja menn (eins og segi í kvæðinu "Ekki bara spauga með þá útnesjamenn..") - að kalla Reykjanesbæ City of Gett me out of Here er eiginlega óskiljanlegt! Skrítnara þykir mér ef íbúar ætla að taka þessu þegjandi. Nafnið er eins mikið rangnefni og hugsast getur. Fólk sem býr í Reykjanesbæ gerir það ekki að gamni sínu og fæstir eiga þess kost að "flýja" þaðan. Fáir ferðamenn kynnast bænum svo nafnið kemur þeim ekki við. Annað sem ég skil ekki er að Egilsstaðir fá nafnið City of Queer sem segir sig sjálft að hlýtur að særa einhvern. Staðinn er ekki hægt að kalla höfuðstað samkynhneigðra á Austurlandi með réttu, það á kannski við upp að litilu marki en það er kolrangt að kynna bæinn þannig. Forsvarsmenn blaðsins ættu að sjá sóma sinn í því að taka þetta úr umferð hið snarasta og biðjast afsökunar.


mbl.is Saklaust grín eða ferðamannafæla?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband