Færsluflokkur: Kvikmyndir

Er Cruise að færa sig á leiksviðið?

Konungur hasarmyndanna hefur ekki látið mikið fara fyrir sér undanfarið, varla síðan í myndinni Vanilla Sky sem meira að segja var endurgerð betri myndar. Skýringarnar eru væntanlega þær að hann hefur verið að hasla sér völl á öðrum vettvangi samfélagsmála og staðið í "hreiðurgerð". Skyldu menn (og konur) ekki lengur hafa áhuga á Tom Cruise? Mér finnst undarleg kúvending að veðja á þessa stelpu sem lítið hefur sannað með leik sínum og líklegast þætti mér að Cruise sé að stefna á Brodway eða því um líkt, jafnvel til starfa á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur tekið þátt í uppfærslum í London oftar en einu sinni og því er viðbúið að sá vettvangur heilli hann meira en hinn útþynnti Hollywood kvikmyndabransi.
mbl.is Jolie í stað Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband