Færsluflokkur: Bloggar

Hvað segir orðnotkunin ,,Krakkar að mótmæla"?

Hún segir allt sem segja þarf um umfjöllun mbl af þessum mótmælum, þ.e. að þetta sé hálfgerður fíflagangur. Það er bara svo og svo lengi hægt að mótmæla á þann hátt sem gert hefur verið þegar það skilar engu.
mbl.is Vilja ríkisstjórnina burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er dagvöruverslunin í Kringlunni?

Nei mér er spurn. Ég fagna því hins vegar að bölvað áfengið hækki og megi það hækka sem mest. Ekki rennur gróðinn þar í vasa Jóns Ásgreirs og ekki drekk ég áfengið. Hver sem getur leyft sér að neyta áfengis nú um hátíðarnar getur bara borgað fyrir það dýrum dómum. Og ég hef aldrei séð neina dagvöruverslun, held þetta sé bara svona fimbulhugtak til að tala um neytendamál í skýjunum svo enginn skilji.


mbl.is Dagvara hefur hækkað um 30,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Estrógen-keimur af raddhljómi Vilhjálms.

Tja heyrst hefur að hormónalyf fyrir kvenfólk á breytingarskeiði væru uppurinn vegna kreppunnar. Var verið að hamstra Vilhjálmur?
mbl.is Ávísun á risagjaldþrot ef lán fæst ekki frá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

xxxxx xxxxxx Eiríkur Jónsson!

Skelfing er ég orðin þreytt á ámátlegu fési Eiríks í tengslum við kjara-og fjármálaumræðu. Varð bara að koma þessu frá. Hver er hann til að mæla fyrir munn kennara um að þeir skuli nú sem best hafa sig hæga?
mbl.is Bankarnir verða að selja eignir erlendis
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Eruði að grínast?

Minnkurinn metur að grunnlaun lækna eigi að hækka um minnst 100 þús á mánuði því annars fer þetta góða fólk að flýja land og í staðinn verður læknisþjónustunni sinnt af B-klassa apaköttum sem fengu læknaskírteinið í cheerios pakka. Tala sem manneskja með reynslu af heilbrigðiskerfinu.

 

 


mbl.is Fylgja kröfum eftir með aðgerðum ef þarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlýtur Jón Sigurðsson þá ekki að vera næstur?

Nei ég segi svona, þeir eru svo líkir á alla vegu, fyrir utan það að hafa báðir slegið í gegn sem annars sætis Idolstjörnur. Annars spyr maður sig hvar þetta endar allt saman.

Hlýtur Jón Sigurðsson þá ekki að vera næstur?

Nei ég segi svona, þeir eru svo líkir á alla vegu, fyrir utan það að hafa báðir slegið í gegn sem annars sætis Idolstjörnur. Annars spyr maður sig hvar þetta endar allt saman.
mbl.is Clay Aiken kemur út úr skápnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blússandi berjalönd

Ég hef varið undanförnum dögum í berjalöndum okkar hér fyrir norðan. Það hefur ekki verið önnur eins spretta í amk. 8 ár, allavega í krækiberjum. Ég hef tjaldað venjulega þrjár nætur á hverjum stað og náð allt að 2 lítrum á klukkutímann. Það er hægt að segja að hvergi líði mér betur en í berjamó enda friðsældin með eindæmum og veiðieðlið fær að njóta sín. Eina sem varpar skugga á friðsældina er þegar bílar flauta á mig en yfirleitt held ég mig fjarri alfaraleiðum. Berjatínslan hefur margvísleg áhrif á mig og tilhugsunin um sulturnar sem ég gef ættingjum og vinum er æsandi. Í ár hef ég hugleitt að reyna berjavínið sem ég hef oft ætlað mér að brugga en það er mikil vinna og nokkuð flókið ferli. Kynhvötin tekur hressilega við sér í berjalöndum þar sem enginn sér til manns og hægt er að haga sér eins og manni þykir þægilegast. Að koma við sig undir berum himni um hábjartan dag er engu líkt og hef ég kynnst líkama mínum nokkuð náið undanfarna daga. Þó verður að hafa hugann við efnið og berin tína sig ekki sjálf. Nú ætla ég að hvíla þessa viku þar sem fingurnir eru aumir og fjölskyldan kallar sömuleiðis. Svo er bara að sjá hverju af aflanum má koma í verð.


Tvírætt - fullstrangur dómur

Zeitz átti ekki skilið að fara af velli fyrir þetta brot, við sáum Sverre Jakobsen taka svipaða sveiflu í síðari hálfleik og það fór alveg fram hjá dómurum leiksins. Þetta orkar mjög tvímælis, ásetningur brotsins er ekki gefinn þótt Snorri hafi orðið illa fyrir barðinu á því. Þetta hafði auk þess svo afgerandi áhrif á gang leiksins að í raun má gera ráð fyrir því að Þjóðverjar kæri þennan úrskurð fljótlega.


mbl.is Zeitz fékk rauða spjaldið fyrir óþverrabrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spjátrungsháttur

Gat vínið ekki heitið íslensku nafni? Chateau er afglapalegt nafn og eitthvert snobb til að hefja upp þann viðbjóð sem svona birkivín hlýtur að vera. Ég fagna því þó að skógræktin hyggist ekki fara út í vínframleiðslu, nægt er bölið fyrir. Það er löngum vitað að Íslendingar kunna ekkert með áfengi að fara, síst af öllu léttvín sem í minni sveit kallaðist hommadjús. Áfengið átti sín ár af minni ævi sem ég fæ aldrei aftur og yrði ég fyrst til að fagna því að þetta fíkniefni yrði gert útlægt og bannað með lögum.
mbl.is Birkivínið ljúffengt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband