8.7.2008 | 15:17
Einu sinni voru 3 kaþólskir prestar og biskup í bíl
Finnst ykkur þetta eitthvað sniðugt? "Eldklerkarnir", Klerkar í bílveltu", - þetta er alvarlegt mál. Hvað ef þetta hefði verið hr. Karl Sigurbjörnsson? Það hefði verið hneisa! Ég frábið allar kenningar um refsivönd guðs, ölvun við akstur, ummæli um Pólverja á Íslandi, kynlíf í bílum og lögregluna á Blönduósi. Svona mál eiga skilið að fá viðunandi umfjöllun með virðingu.
Klerkar í bílveltu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fréttin var einfaldlega ekki svona fyrst. Það voru engar myndir og ekkert minnst á eld, aðeins að einn hafi handleggsbrotnað. Það er nú líklegast ástæðan fyrir gríninu hjá þeim fyrstu sem blogguðu um þessa frétt
baddi (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.