18.7.2008 | 14:39
Söguslóðir Bubba mun merkilegri
Ég held að ferðin "Söguslóðir Bjarkar" um Ísland sé fyrirfram tapað spil. Jú það má skoða staðina þar sem Tappinn spilaði og húsin henar í Reykjavík en hvað með alvöru ferð - þ.e. söguslóðir Bubba? Þar erum við að tala um hringinn allan og svo mætti taka Rúnna Júl með í þetta og fara til Frakklands og Kúbu. Hljómsveitin Gildran væri á sömu slóðum og Sigur Rós fyrir utan Ásbyrgi en nær væri að skoða Magna eða Land og syni og enda á Þjóðhátíð. Svo sé ég ekki af hverju ekki mætti skoða söguslóðir Múm fyrst verið er að hampa krúttkynslóðinni. Þetta er landi og þjóð til skammar.
Á söguslóðir Bjarkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.