25.7.2008 | 23:41
Kallaði hann apamann
Það er eitt að varpa ábyrgð þess að Bandaríkin séu niðurlægð á Obama sem er helsta von þeirra eins og stendur en annað og alvarlegra að kalla hann apamann (http://nymag.com/daily/intel/2008/06/the_makers_of_a_racist_obama_t.html) sem er greinileg tilvísun til kynþáttar hans og rakið kynþáttahatur. Obama er fullfær í slaginn gegn McCain og uppruni hans, sem hann getur ekkert að gert, hefur síst þar nokkuð um að segja. Í Audacity of Hope kemur skýrt fram að leið Obama í málefnum Austurlanda er skynsamleg og rökrétt og væri gaman að sjá McCain svara stefnu hans á málefnalegri hátt en þetta.
McCain hæðist að Obama | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.