18.7.2008 | 11:59
Mile high club
Þegar fólk stundar kynlíf í háloftunum kemst það sjálfkrafa í MileHigh Club. Þetta fólk er oftar en ekki drukkið og fyrir ykkur sem hafið reynt þetta þarf ekkert að tíunda hve erfiðlega gengur að athafna sig á flugvélaklósetti. Því er ekki nema von að maðurinn hafi þurft að opna hurðina, það hefur einfaldlega hentað látunum þetta sinnið. Það eru óskráðar reglur að áhafnir flugvéla láti þessa iðju fram fara án nokkurs inngrips enda nokkur virðing borin fyrir þessum klúbbi. Að minnsta kosti hafa áhafnir IcelandAir gefið þessu slakan taum, eina tilfellið sem ég veit til þess í raun að flugþjónar hafi skipt sér af var með EasyJet-flugfélaginu. Til frekari upplýsinga um þennan klúbb má lesa hér: http://www.milehighclub.com/ og Mile high club - Wikipedia, the free encyclopedia. Þess má geta að í klúbbnum eru hérlendis þrír starfandi ráðherrar, fjöldi athafnamanna, þekktur knattspyrnuþjálfari, flugmenn og flugþjónar auk fjölda annarra.
Reyndi að opna flugvélahurð í lofti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2008 | 11:38
Skammtar bara minni
Menn hafa jafnt og þétt minnkað skammtinn af fiski á veitingahúsum í Reykjavík til að mæta hækkandi verði (auk þess að hækka verðið) þannig að ég skil ekki hvað menn eru að kvarta. Allir nema Múlakaffi bjóða barnaskammt af fiski fyrir yfir 2500 kall og ættu að skammast sín. Svo sárna mér þessar gulrætur sem alltaf fylgja fiskréttum núorðið, ég horfi bara á fiskinn minn og verð einhvern veginn dapur þegar þessu er laumað með, kannski undir fiskinum til að láta hann virðast meiri. Þetta verðskuldar rækilega úttekt.
Verð á íslenskum þorski rýkur upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 17:41
Þetta er nú ekkert..
Jackson notaði N-orðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.7.2008 | 17:37
Rétti andinn
Tjaldbúar undirbúa aðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 12:46
Vonum að þetta fari vel fram
Er með rokk í hjartanu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 11:23
Benedikt við kabyssuna stóð - í kröppum dansi
Rauk upp á þak til að slökkva eldinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 11:16
Nú er nóg komið!
Ég hef verið dugleg að ferðast með fjölskyldunni um landið í sumar og verið einstaklega ólánleg með veðrið. Þótt víðast hvar hafi verið sólríkt í sumar hefur alltaf verið hálfgerður kalsi í kringum okkur, hvort heldur það var í sumarhúsinu í Skorradal eða á tjaldstæðum á Vesturlandi. Ýmis var þá svalt og hálfgerður strekkingur eða það naut engrar sólar. Nú vil ég fara að fá mitt, fá minn hluta af þessu sumri sem senn er á enda og jafnvel ná mér í smá lit. Ef menn geta ekki séð til þess að fólk geti byggt á spám Veðurstofu Íslands og hagað sínum áætlunum eftir þeim má allt eins leggja þessa stofnun niður. Það hefur ekkert gengið upp í sumar, ekkert, og það er bara ekkert hægt að lesa í veðrið eftir þeim upplýsingum sem birtast á vedur.is. Getur verið að stærri aðilar í ferðaþjónustunni hafi þarna áhrif?
Veður fer kólnandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 11:10
Líka bannað í Breiðholtinu
Það er gaman að sjá hve við Íslendingar erum framarlega þegar kemur að ásýnd borgar og virðingu við mannvirki. Ég vil nefna tvennt. Í fyrsta lagi hefur verið bannað að sofa á götunni í Breiðholtinu síðan 1988, þá lögðum við Gummi og Haffi okkur á göngustíg rétt við sundlaugina en höfðum ekki sofið lengi þegar við vorum hirtir upp og teknir upp á Fellastöð. Hitt er það að árið 2000 var ég handtekinn fyrir að hafa klifrað upp á eina af styttum bæjarins til að njóta sólar og fá mér hressingu. Mér þótti nóg um á sínum tíma en nú fyllist ég stolti þegar ég les um að stórborgir Evrópu líti til okkar Íslendinga og læri af siðum okkar.
Bannað að sofa á götunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2008 | 11:06
Hvernig væri að huga að íslenskum skólum?
Íslendingar reisa skóla á skjálftasvæðinu í Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.7.2008 | 11:03
Það er nú ekkert!
Jarðskjálfti á Suðurlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)