Færsluflokkur: Bloggar

Frjósemisdans Eurobandsins

Við hjónin bregðum nú stundum á leik þegar börnin eru genginn til hvílu. Á ég það til að dansa fyrir mann minn og þá sérstaklega á jólum og á tyllidögum. Þetta er liður í því að halda hjónabandinu spennandi. Ef að eurobandið myndi leika eftir slíkan dans í staðinn fyrir að vera með þetta handapat og mjaðmadillur gætum við vel átt möguleika á að komast áfram. Það þyrfti nú kannksi að leiðbeina þeim í hvílubrögðum í staðinn fyrir að vera ofurölvi með einhverju kóngafólki.
mbl.is Frjósemisdans á Filippseyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í lögreglunni á Akureyri...

..þar eru allavega tveir of feitir. Það eru Gísli Bjarka og hann Sigurður Hannesson. Þeir eru bæði kúlulaga og skvapaðir auk þess sem lítil sem engin yfirferð er á Gísla á velli. Hvorugur er mjög fær til að koma í veg fyrir glæp í uppsiglingu, til þess eru þeir of hægir, en Gísli er ágætur í að greina frá glæpum sem hafa átt sér stað, það má hann eiga.  Auk þess er nágrannakona mín hún Hildur akfeit og dóttir hennar má nú fara að passa sig.


mbl.is Lögreglumenn í Mósambík of feitir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eurobandið í ræktinni

Djöfull er gaman að sjá hvað Friðrik er að grennast. Greinilega er strákurinn að hamast eins og hamstur í ræktinni. Það sama má ekki segja um þessa stelpu. Veit ekki nema Gillz hefði frekar átt að fara með Friðriki. Sakna líka Mercedes Club úr fjölmiðlunum þessa dagana. Ekkert rætt nema Eurobandið og mér sárnar það.
mbl.is Eurobandið í sveiflu í Belgrad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í trássi við lög

Ég veit ekki betur en að lög séu í gildi um það að ekki megi nýta hrefnur í atvinnuskyni, sá sem hafi viðurværi sitt af vændi annarra brjóti lögin. Auk þess sem þessi umfjöllun öll niðurlægir stórar konur.
mbl.is Alvarleg aðför að hvalaskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Söluverð

Gaman væri að vita hvert söluverð Pólverjans var á gengi þess dags.


mbl.is Framsal á Pólverja staðfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er enginn geirfugl

Þetta er í mesta lagi lundi. Gott að láta hafa sig að fífli, en þess má geta að geirfugl hefur ekki sést á Englandi síðan 1976 um haust.
mbl.is Geirfuglsegg til sýnis í Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólin 2005

...lékum við hjónin svipaðan leik til að hrekkja pabba gamla. Engin leiðindi urðu úr því en það fauk nú dálítið í mömmu.
mbl.is Mosleyhóra kona bresks leyniþjónustumanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ungt og leikur sér

En hvurs lags bæli er þetta Akranes-grey að verða? Réttast væri að loka Hvalfjarðargöngunum svo þetta vaði ekki uppi. Hvaða gagn er af Akranesi? -Spyr sá sem ekki veit.
mbl.is Óku undir áhrifum e-taflna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Horfðu á ******* þáttinn Ólafur

Það eina sem má rekja til hins hafnfirska Magnúsar "Scheving" er innantómt þvaður um ofvirkan álf sem þarf alltaf að skipta sér af því sem honum kemur ekki við.


mbl.is Magnús Scheving og Latibær í Time
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árásir á sakleysingja

Mér sárnar þessi frétt og fréttaflutningur af þessu tagi. Kannski gleymist að taka tillit til þeirra sem hafa unnið lengi að útreikningum á arðsemi virkjunarinnar og hvað í andskotanum með það þótt þetta fúla svæði fari nú að gera eitthvert andskotans gagn annað en að framleiða skítafýlu.
mbl.is Bygging Bitruvirkjunar óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband