Færsluflokkur: Bloggar
14.7.2008 | 22:19
Dautt músahræ finnst í kjallara!
Skelfileg sjón blasti við hjónunum Salóme Sif og Bjarti Mána þegar þau komu heim eftir viku hjólhýsisferðalag um landið. Svo virtist sem lítil hagamús músafull af 10 ungum hafði látið lífið í kjallaranum hjá þeim. Hagamúsin virtist hafa komist inn um kjallaraglugga í þeim tilgangi að verða léttari en að það hafi reynst henni ofviða og lést frá 10 litlum afkvæmum sínum.
Ungunum litlu vegnar þó vel og hefur og verið komið fyrir í athvarfi þar sem hlúð er að þeim á þessari erfiðu stundu.
![]() |
Reyniviður finnst við Búrfell |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2008 | 22:08
Isss...bara nýbúinn í vaxi
Miðað við myndirnar sem maður sá hér fyrir nokkrum mánuðum þegar Britney var með illa hirta monsuna útum allt er ánægjulegt að sjá að það hefur orðið breyting á í sálartetrinu. Það er beint samhengi milli umhirðu kvenna og andlegrar líðanar og það að hún sé farinn að hylja sig og músina á almannafæri bendir til að lyfjagjöfina er farinn að gera sitt.
![]() |
Britney blómstrar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2008 | 15:17
Einu sinni voru 3 kaþólskir prestar og biskup í bíl
Finnst ykkur þetta eitthvað sniðugt? "Eldklerkarnir", Klerkar í bílveltu", - þetta er alvarlegt mál. Hvað ef þetta hefði verið hr. Karl Sigurbjörnsson? Það hefði verið hneisa! Ég frábið allar kenningar um refsivönd guðs, ölvun við akstur, ummæli um Pólverja á Íslandi, kynlíf í bílum og lögregluna á Blönduósi. Svona mál eiga skilið að fá viðunandi umfjöllun með virðingu.
![]() |
Klerkar í bílveltu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.7.2008 | 15:04
Mér finnst Sindri líka sætur
Ég vann með Sindra eitt sumar 2001 og assgoti var kúturinn sætur. Á sólríkum sumardögum átti maður bara stundum erfitt með sig, en síðan þá hef ég haft augastað á kappanum og gæti vel hugsað mér að starfa með honum á erlendum vettvangi.
![]() |
Með augastað á syni Bjarkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2008 | 15:02
Á heimili mínu var samþykkt að dregið yrði úr losun
![]() |
Samþykkt að draga úr losun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2008 | 15:00
Verst fyrir Cynthiu og börnin
Það er agalegt hvað þessi fíkniefni geta komið mönnum í bobba. Hvað gerir Cynthia nú með börnin 3? Ég var alveg viss um að hann væri eitthvað skrýtinn maðurinn þegar hann var í Kastljósinu hér um árið, alveg fékk það á tilfinninguna um leið. En hvaða blaðaskríbent velur að kalla Íslandsvininn fífl?
![]() |
Steve-O á geðheilbrigðisstofnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 23:20
Spurning um endurskilgreiningu
Dow Jones er ekki sama vísitala og fyrir tveimur árum. Það er alveg upp í vindinn að draga ályktanir af þessum samanburði.
![]() |
Dow Jones ekki lægri í tæp 2 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 23:12
Svona fer þegar Ulveus kokkálar Anderson
Það vita allir að Benny Anderson er skapmaður og af þvi sem sést er hann bæði langrækinn og þver. Það er búið að bjóða meðlimum ABBA gull og meira gull fyrir það að koma saman aftur og aftur en allt strandar þetta á Benny. Kókaínið sem flæddi yfir Svíþjóð í upphafi 9. áratugarins veitti mönnum óþrjótandi sjálfstraust og partíið virtist endalaust. Í bókinni Does your mother know (Björn Ulveus, Knud Johanson ofl. 1998) kemur fram að skotturnar tvær hafi brugðist sjálfum sér svo algerlega auk þess sem skap Bennys kallaði fram það versta í öllum (að mati Björns). Svo þekkja menn framhaldið. Við sáum flest hvernig fór fyrir Stjórninni!
![]() |
Aldrei saman á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.7.2008 | 22:31
Lögreglan lýsir eftir karlmanni - segir ansi margt
Sú var tíðin að lögreglumenn urðu að vera 190 á hæð, yfir 100 kg og hórufærir í glímu. Nú er öldin önnur. Nú sjást lögreglumenn á stærð við Valtý Björn, menn sem bera á sig dagkrem og nostra við skeggið eins og Arnar Gauti. Það kom að því að karlmennskuímyndin þurfti það sem kallað er karlmenni. Mann eins og Geir Jón, mann eins og Grétar Mar, mann eins og Árna Johnsen.
![]() |
Maðurinn fundinn |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2008 | 22:21
Sauðkindin - tákn frelsis
![]() |
Tákngervingur frelsis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)