Ætti kannski að snúa sér að öðru

Það er leiðinlegt að sjá hvernig lánadrottnar fara með mann sem hefur sýnt alþjóð fram á ótrúlegan árangur og hverju menn fá áorkað ef þeir ætla sér það. En kannski er nú kominn tími til að leggja árar í bát. Að hugsa sér hvað slíkur eldhugi gæti gert á vettvangi stjórnmála. Eða sem ráðunautur. Auk þess hafa fjárbændur það ekki sem best nú í haust og varla hægt að reka bú nema með tapi.
mbl.is Lamaður bóndi sviptur sérbúnum vélum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er ótrúlegur jaxl!  Maður með svona skapgerð legst ekki í kör þó honum verði rúllað af landareign sinni og skilinn eftir út í rassgati!

 Ég er sammála þér að hann á heima á vettvangi þar sem hann gæti hjálpað öðrum að finna von í þeirra "von-lausu" aðstæðum, hverjar sem þær eru!  Fólk á það til að gefast upp við minnsta mótlæti en hér er maður sem sannar að hugurinn er okkar sterkasta vopn.   

Arnar (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband