Hvert einasta sinn!

Alltaf tapar Valur öllum leikjum. Mikið fer þetta í taugarnar á mér, leggst jafnvel á sálina. Það er eins gott að hr.W. tali nú yfir hausamótunum á sínum mönnum og taki í rassgatið á þeim. KOMA SVO STRÁKAR!
mbl.is Valsmenn töpuðu, 2:0, í Hvíta-Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ég sat fund sameinuðu þjóðanna

Sá ég Omar al-Bashir,
ekki leist mér á hann.
Gaf honum feikna-blóðnasir
og beit af tillan smáan.
mbl.is Ákærur birtar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert að óttast

Sjaldan hefur sjóherinn,
Svalbarðsmanninn litið.
En Rússinn ætti að líta inn
og off'ann fyrir vikið.
mbl.is Rússar aftur á ferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pósti verður einnig dreift á svæðinu

Lágmark að taka fram hverjir verða helst að störfum þarna. Á maður von á úr að ofan?


mbl.is Malbikað á Kringlumýrarbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tops þrjú

Það er engin lykilstaða að hafa 3 stig þegar mótið er hálfnað. Eftir 2 umferðir stinga Keflavík, FH og Valur af og á endanum hafa Keflvíkingar þetta. Það er leiðinlegt að sjá karaklerleysið hjá KR-ingum um þessar mundir. Maður hefði ætlað að vinnan í vetur hefði skilað þeim lengra. Mér sárnar að horfa upp á þetta leik eftir leik og áhorfendur fylgja bara.
mbl.is Kristján Guðmundsson: ,,Það verða fjögur til fimm lið í toppbaráttunni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þriðja leiðin" fær að sögn þingmanns

Þegar stjórn okkar litla fyrirtækis leitaði á náðir þingmanns okkar, Guðna Ágústssonar, varð fyrir svörum aðstoðarmaður þingmannsins Agnar Bragi Bragason. Að sögn Agnars er helst rætt innan flokksins að fara svokallaða þriðju leið í þessu sambandi, þ.e. að fastsetja gengi krónunnar miðað við þá dönsku en þá spyr ég lesendur; hvert erum við þá komin?


mbl.is Myntsamstarfsleið ekki fær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dautt músahræ finnst í kjallara!

Skelfileg sjón blasti við hjónunum Salóme Sif og Bjarti Mána þegar þau komu heim eftir viku hjólhýsisferðalag um landið. Svo virtist sem lítil hagamús músafull af 10 ungum hafði látið lífið í kjallaranum hjá þeim. Hagamúsin virtist hafa komist inn um kjallaraglugga í þeim tilgangi að verða léttari en að það hafi reynst henni ofviða og lést frá 10 litlum afkvæmum sínum.

Ungunum litlu vegnar þó vel og hefur og verið komið fyrir í athvarfi þar sem hlúð er að þeim á þessari erfiðu stundu.


mbl.is Reyniviður finnst við Búrfell
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Isss...bara nýbúinn í vaxi

Miðað við myndirnar sem maður sá hér fyrir nokkrum mánuðum þegar Britney var með illa hirta monsuna útum allt er ánægjulegt að sjá að það hefur orðið breyting á í sálartetrinu. Það er beint samhengi milli umhirðu kvenna og andlegrar líðanar og það að hún sé farinn að hylja sig og músina á almannafæri bendir til að lyfjagjöfina er farinn að gera sitt.


mbl.is Britney blómstrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einu sinni voru 3 kaþólskir prestar og biskup í bíl

Finnst ykkur þetta eitthvað sniðugt? "Eldklerkarnir", Klerkar í bílveltu", - þetta er alvarlegt mál. Hvað ef þetta hefði verið hr. Karl Sigurbjörnsson? Það hefði verið hneisa! Ég frábið allar kenningar um refsivönd guðs, ölvun við akstur, ummæli um Pólverja á Íslandi, kynlíf í bílum og lögregluna á Blönduósi. Svona mál eiga skilið að fá viðunandi umfjöllun með virðingu.


mbl.is Klerkar í bílveltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér finnst Sindri líka sætur

Ég vann með Sindra eitt sumar 2001 og assgoti var kúturinn sætur. Á sólríkum sumardögum átti maður bara stundum erfitt með sig, en síðan þá hef ég haft augastað á kappanum og gæti vel hugsað mér að starfa með honum á erlendum vettvangi.


mbl.is Með augastað á syni Bjarkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband