20.7.2008 | 11:52
Hvað varð um þessa grein?
Lengi var hægt að fylgjast með íslensku torfærunni í mótorsportþáttum og jafnvel víðar en nú er ekki einu sinni opinber heimasíða þar sem fylgjast má með þessu. Ég fylgdist með torfærunni í gær við toppaðstæður á Blönduósi í frábæru veðri en man engan veginn hvað gerðist? Klofnaði sambandið eða hvað var það?
Óvænt úrslit í torfærunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
RÚV. klikkaði. Prófaðu að skoða lia.is þar ætti að vera einhver ummfjöllun.
Guðrún Júlíusdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 15:37
Já ertu lengi búin að hafa áhuga á torfæruakstri, mótorsporti?? Það er aðeins ein kona sem ég hef þekkt um ævina sem þykir þessi "bílaíþrótt" með skemmtilegra sjónvarpsefni, en ég hristi bara hausinn þegar hún nefnir þetta, svo hún hefur enn meira gaman af því að ræða þetta við mig En kvenminnkurinn kemur mér sífellt á óvart og ég las þig i fyrsta skipti í gær, bara gaman af því auðvitað!
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 20.7.2008 kl. 18:24
Nei sambandið er langt því frá klofið
Það eru smávægileg vandamál með sjónvarpsmálin í ár sem er verið að leysa
Þangað til er hægt að nálgast vídeó á www.motorsportklippur.net (e. kl. 19 mánud.)
Halldór Vilberg Ómarsson, 20.7.2008 kl. 21:29
Það er hægt að fylgjast með á http://1337.is/torfaera
Aron (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 13:40
það er til torfæru spjall sem er búið að vera mjög virkt og koma mikið af myndum og úrslitum þar. njótið
http://1337.is/torfaera/
Bjarki (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 15:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.