Færsluflokkur: Íþróttir

Fær Iðunn að spila?

Það verður gaman að fylgjast með þessum leik á netinu;  fyrir einhverja guðsmildi fengum við sæti og nú er að sæta lagi. Sérstaklega óska ég þess að Iðunn Elva frænka mín nái að setja mark sitt á leikinn. En nú vil ég benda stúlkunum á það að hér er alvaran sjálf; þetta er á öðrum kalíber en þessir leikir sem þær hafa spilað hingað til og aðallega þurfa þær að læra að þetta ber að taka af meiri alvöru, festu og ákveðni en annars. Ungverjar eru með lélegt lið en það þýðir ekki að taka megi sigrinum sem gefnum. Þið vitið stelpur að íslenska þjóðin stendur að baki ykkur!
mbl.is Mæta Ungverjum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um þessa grein?

Lengi var hægt að fylgjast með íslensku torfærunni í mótorsportþáttum og jafnvel víðar en nú er ekki einu sinni opinber heimasíða þar sem fylgjast má með þessu. Ég fylgdist með torfærunni í gær við toppaðstæður á Blönduósi í frábæru veðri en man engan veginn hvað gerðist? Klofnaði sambandið eða hvað var það?
mbl.is Óvænt úrslit í torfærunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband